Íbúð til leigu í Orlando.  (Þórður Magnússon  S: 898-5463  -  netfang: djk@djk.is)

Fyrir þá sem nota google earth þá notið:  3930 Southpointe Drive, Orlando, FL, United States

Rétt tæplega 100 fermetra íbúð í Ventura hverfinu í Orlando.  Rétt um 700 metra frá fyrstu braut á Ventura vellinum.

Hér eru nokkrar myndir:

Google Earth yfirlitsmynd:

 

Þessi mynd er af aðkomunni í Ventura hverfið.

Klúbbhúsið sem allir hafa aðgang að og er með sameiginlegri sundlaug og íþróttaaðstöðu.

Hér er gengið inn í íbúðina:

Þessi sundlaug tilheyrir íbúðinni og íbúðunum í Oasis

Hér eru myndir úr klúbbhúsinu en þar er sameiginleg sundlaug fyrir allt hverfið, svo er sundlaug rétt við húsið sem er einungis fyrir íbúa Oasis. 

Hér koma nokkrar myndir frá klúbbhúsinu framan við fyrstu braut

Hér koma svo nokkrar myndir innan úr húsinu.  Íbúðin samanstendur af eldhúsi, stofu og tveim svefnherbergjum sem síðan bæði hafa sitt baðherbergi og rúmgóðu fataherbergi.

Hér er gengið inn í íbúðina, íbúðin er á annrri hæð í tveggja hæða húsi.  Það eru litlar svalir í íbúðinni sem eru ekki með skemmtilegu útsýni en prýðilegar til að losna við þá sem enn þurfa að standa í reykingum. 

Að vísu er búið að henda þessu teppi og setja parket.

Svo er "Master Bedroom" eða aðalhjónaherbergi eins og það kallast á ylhýra.

Og hér er hitt svefnherbergið.  Það er aðeins minna, ekki mikið.

Bæði svefnherbergi hafa lítið hliðarherbergi, fatageymslu.

Báðum svefnherbergjum fylgir klósett og bað.

Internet er í húsinu.
 

Heimilisfangið er 3930  Southpointe drive, 328822 Orlando Florida. Íbúð nr 219.

Áhugasamir geta hringt í síma 898-5463 eða sent tölvupóst á djk@djk.is

 

Gagnlegar upplýsingar fyrir notendur hússins:

Lyklar;  Það hangir eitt sett af lyklum fyrir ofan hurðina þegar gengið er inn.  Vinsamlegast skiljið þá lykla eftir á sama stað þegar íbúðinni er skilað.

Við komu þarf að sýna „gatepass“ sem þið fáið afhenda á íslandi, eða svokölluð barcode spjöld sem virka sjálfvirkt í hliðunum. 

Símar í hliðunum eru;

Curryford hliðið S; 407-380-5672

Pershing hliðið S;  407-382-3038

Ef þið fáið gesti þá þarf að hriungja í hliðin og láta vita, eða bara bíða eftir þeim við hliðin og hleypa þeim inn með barcode.

 

Hvíta spjaldið sem lyklarnir hanga í virka sem aðgangur að sundlaugum og líkamsrækt.  Vinsamlegast athugið að þessi spjöld eru mjög dýr og passa þarf vel upp á þau.

 

Aðrir símar sem eru mikilvægir eru:

Pro shop (til að panta rástíma á Ventura golfvellinum) 407-277-2640

Veitingarstaðurinn á ventura  407-380-1822

Admin á Ventura (einungis í neyð) 407-275-7002

Kristján Ingvason  ræðismaður 407-721-2416

Guffa (Hreingerningar) 407-381-4323  &  407-851-3207

Þórður Magnússon, eigandi hússins, 898-5463 (gsm á íslandi nota fyrst +354-8985463)

 

Símar í húsinu:

2 Gsm símar eru í húsinu. 

Hægt er að fylla á þá í Walmart, bestbuy ofl stöðum.

 

Sjónvarpið

Til að horfa á sjónvarp þarf sjónvarpið sjálft að vera stillt á Tv  (gert með því að velja á fjarstýringu „input select“)

Til að nota flakkarann sem er í húsinu;  Stilla sjónvarp á „HDMI1“.  Gert með því að ýta á „input select“  á fjarstýringu.

Síðan þarf að nota litlu fjarstýringuna sem virkar á flakkarann.   Kveikt á tækinu ef það er slökkt með því að ýta á „power“

Valið á fjarstýringu „Video“ Með því að nota örvatakkann upp/niður

Valið „folders“ með því að nota örvatakkann hægri/vinstri

Þá kemur upp mappa sem heitir Video.  Valið með því að ýta á enter.

Þar inni eru myndir og þættir í hundruða eða þúsundatali.  Til að auðvelda leit eru möppurnar í stafrófsröð. 

 

Internet;

Í húsinun er þráðlaust internet.  Til að tengjast því þarf að finna í wireless network net sem heitir „clear spot“.  Þegar það er fundið þá er lykilorðið inn á netið 311c1245

Pungurinn liggur í stofuglugganum og hann þarf að vera tengdur rafmagni.  Hafi slokknað á honum þá er einfaldlega kveikt á honum (lítill takki á hlið tækisins)

 

Gott að vita;

Íslendingar hittast í klúbbhúsinu á miðvikudögum kl 17.

 

Annað: í húsinu er ungbarnarúm, í fataherberginu Í gestaherbergi.    Þegar húsinu er skilað vinsamlegast stillið kælinguna á húsinu (AC- ið) á auto og á 32 gráðu hita.  Það eru fleiri svona blöð í kommóðu í svefnherbergi.  Vinsamlegast skiljið eftir annað eintak á stofuborði fyrir næsta gest.